fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna, það er gott að hæstv. ráðherra er kominn á fætur, við söknuðum hans fyrir helgi en það er nú allt í lagi, enda er hann búinn að ná sér af pestinni. En, virðulegi forseti, hæstv. ráðherra heldur utan um málaflokk sem er mikilvægur og snýr m.a. að öryrkjum. Það vakti athygli mína að á síðasta kjörtímabili sagði formaður Flokks fólksins í umræðum í þinginu 22. júní 2024, með leyfi forseta:
„Þetta frumvarp ber engu að síður með sér þá lítilsvirðingu og þá ítrekuðu aðför sem viðhöfð hefur verið hér gegn öryrkjum þessa lands.Þetta frumvarp ber engu að síður með sér þá lítilsvirðingu og þá ítrekuðu aðferð sem viðhöfð hefur verið hér gegn öryrkjum þessa lands. […] Það sem þau kalla hér í dag virknistyrk er ekkert annað en starfsgetumat, hvorki meira né minna. […] Þetta almannatryggingafrumvarp sem við erum að tala um hér og á að auka svo mikið framfærslugetu öryrkja — alveg 385.000 kr., hallelúja, fyrir skatt. […] En við í Flokki fólksins munum aldrei, aldrei vera á grænum takka við þetta frumvarp.“
Eftir að formaður flokksins varð ráðherra, sagði hún, með leyfi forseta:
„Nýtt kerfi er betra, manneskjulegra og sanngjarnara. Við tökum núna betur utan um fólkið okkar og þann mannauð sem í því býr. Aukningin til öryrkja er 18.000 milljónir króna á ári sem eru mestu kjarabætur sem þessi hópur hefur fengið í áratugi. Ég þekki af eigin raun hversu óréttlátt og flókið gamla kerfið var og er afar stolt á þessum tímamótum.“
Virðulegi forseti. Það er svolítill munur þarna á, hvað var sagt fyrir kosningar og svo eftir kosningar. Nú fer Flokkur fólksins með þennan málaflokk. Hver er skoðun Flokks fólksins? Er það skoðun flokksins fyrir kosningar eða eftir kosningar?