158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:19]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er alveg rétt að Flokkur fólksins og fleiri höfðu verulegar áhyggjur af þeim breytingum sem voru fyrirhugaðar á almannatryggingakerfinu á sínum tíma. Það laut t.d. að starfsgetumatinu og áhyggjum ekkert ósvipuðum þeim sem voru t.d. í Bretlandi á sínum tíma þar sem niðurstaðan var að fólki var í sjálfu sér gert að finna starf við hæfi sem það gat jafnvel ekki unnið eða starfið var ekki til. En það voru auðvitað gerðar og það hafa verið gerðar ákveðnar breytingar í þessari vegferð sem gera það að verkum að viðhorf míns flokks og okkar til nýs kerfis hefur breyst. Það voru mikilvægar breytingar á frumvarpinu sjálfu og sömuleiðis í gegnum reglugerðarbreytingar. Þannig að þegar allt kemur til alls þá tel ég að breytingarnar hafi verið til góða. Eftir þær breytingar og þær reglugerðarbreytingar sem gerðar hafa verið hefur dregið úr þeim áhyggjum sem við höfðum á sínum tíma.