158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:22]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína spurningu. Mikilvægasta kerfisbreytingin sem var gerð sem dró verulega úr þeirri gagnrýni sem bæði Flokkur fólksins og Öryrkjabandalagið m.a. höfðu var heimild Tryggingastofnunar til að víkja frá skilyrðum um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat væri bersýnilega óþarft. (Gripið fram í.)Þetta er auðvitað gríðarlega mikilvægt atriði og var svona grunnurinn að þeim áhyggjum sem við höfðum. (Gripið fram í.)