fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Hér erum við að ræða frumvarp til fjárlaga og það fyrsta hallalausa síðan 2017–2018. Þegar ég fletti fjárlögunum blasa við annars vegar styrkleikar og hins vegar veikleikar í rekstri ríkissjóðs. Ég get ekki annað en nefnt skuldastöðu ríkissjóðs og þær himinháu vaxtagreiðslur sem sjóðurinn ber á hverju ári og gert er ráð fyrir 166 milljörðum kr. í vaxtagreiðslur. Við trónum á toppi Evrópulanda í vaxtabyrði ríkissjóðs en erum um miðbik hvað varðar skuldsetningu ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu. Þetta þýðir einfaldlega að ríkissjóður greiðir mun hærri vexti af hverri krónu en t.d. löndin í Evrópusambandinu. Það væri sannarlega hægt að framkvæma margt fyrir þessar upphæðir og því er mjög mikilvægt að ná að lækka vexti hér á landi á þann hátt að hægt verði að nota fjármuni fyrir fólkið.
Á síðustu tveimur löggjafarþingum höfum við gert mikilvægar breytingar sem snúa að íbúðamarkaði og breytingar á stofnframlögum til almenna íbúðakerfisins, skráningum á leigusamningum, takmarkandi breytingar á útleigu í Airbnb og styrkingu hlutdeildarlánakerfisins, svo dæmi séu nefnd. Allt hefur þetta jákvæð áhrif á venjulegt fólk sem vill leigja eða kaupa íbúðir til búsetu en húsnæði er auðvitað fyrst og fremst, og á að vera, heimili fólks en ekki fjárfestingarvara.
Ég hef hins vegar miklar áhyggjur af því hvort sveitarfélög muni taka þátt í að styðja almenna íbúðakerfið og samfélagsleg verkefni. Við höfum séð á undanförnum árum að framboð hefur verið æðimisjafnt á milli sveitarfélaga og í síðustu sveitarstjórnarkosningum var þetta markvisst talað niður af ýmsum stjórnmálaflokkum. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann deili þessum áhyggjum með mér af stuðningi sveitarfélaganna og kerfisins í heild og hvort við þurfum að bregðast við með öðrum aðgerðum til að ýta undir þetta.