158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:25]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég deili vissulega þessum áhyggjum hv. þingmanns af verkefnastöðu félaga sem byggja inn í almenna íbúðakerfið og er verulega hugsi yfir viðhorfi margra sveitarfélaga til þessarar mikilvægu uppbyggingar sem er í sjálfu sér ekki líkt því eins mikil og stóð til þegar kerfinu var komið á á sínum tíma. Engu að síður höfum við átt ágætisfundi og samtöl við sveitarfélögin um að gera bragarbót á þessu, hvort sem það mun skila einhverjum raunverulegum árangri þar sem lóðaskortur hefur vissulega verið helsta ástæða þess að ekki hefur tekist að byggja nægilega mikið og nýta þær fjárheimildir sem hafa verið til stofnframlaga. Við erum að skoða fleiri leiðir, hvernig við getum brugðist við því að koma þessum stofnframlögum út og koma með alvöruinnspýtingu í kerfið.

Eitt af því sem við munum gera og er komið á þingmálaskrá eru breytingar á skipulagslögum sem snúa að vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins og ættu þá að gefa sveitarfélögum meira rými til þess að stækka og bjóða upp á meira byggingarland. Ég leyfi mér að vona að það verði til þess að mun fleiri lóðir standi til boða inn í almenna íbúðakerfið en verið hefur.