158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:27]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég vil taka fram að ég tel þetta rétta forgangsröðun fjármagns, að styrkja og styðja við þá hópa sem minnst hafa á milli handanna í samfélaginu, og við erum auðvitað norrænt velferðarsamfélag þar sem stuðningskerfin eru notuð til þess að létta undir og jafna stöðu fólks.

Annað sem mig langar að nefna er, og ég fagna, að við sjáum núna stórt skref stigið í fjárlögunum varðandi það að draga úr skerðingum almannatrygginga þar sem milljarði er ráðstafað í að hækka mörk skerðingar um 5.000 kr. á mánuði og innan tíðar verðum við komin í 60.000 kr. á þeim stað. Þetta skiptir máli. Skrefin mættu auðvitað vera stærri og vonandi tekst okkur að stíga fleiri skref í þessa átt en það er augljóst að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið jákvæðar til þess að styðja við markaðinn, styðja við fólk og auðvitað breyta því að húsnæði sé notað til íbúðar en ekki fjárfestinga. Við þurfum að halda áfram á þeirri braut að mínu mati.