158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:30]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Mig langar að nota þetta tækifæri til að spyrja hæstv. ráðherra almennt um framtíðarsýn hans með tilliti til efnahagslífsins almennt hér, hverjar hann telji helstu áskoranir í efnahagslífinu með tilliti til þróunar ríkisútgjalda svona almennt en kannski sérstaklega þegar kemur að hans málaflokki. Ég get sagt að frá mínum bæjardyrum séð hef ég miklar áhyggjur af almannatryggingakerfinu okkar öllu sem slíku, bótagreiðslum af ýmsu tagi, og þróun þess. Ég vil nefna hér að það er oft erfitt að bera saman á milli ára vegna þess að af og til er breytt um hugtök í þessum málum þannig að árin verða svo lítið samanburðarhæf þegar búið er að færa t.d. bótaflokka á milli og skíra þá upp á nýtt.

En eins og þetta horfir við mér í dag í þessu fjárlagafrumvarpi má segja að í grófum dráttum verði ríkisstjórnin að gera ráð fyrir að ríkissjóður þurfi að greiða út 337 milljarða kr. í bætur af ýmsu tagi og fjöldi þeirra sem fá greiddar bætur á Íslandi er um 77.000 manns. Inni í þeirri tölu eru auðvitað ellilífeyrisþegar sem enn þá fá greitt frá almannatryggingum, sem vonandi fer nú að fækka og menn reiða sig frekar á lífeyrissjóðina, en ef við tökum þá út sem þiggja ellilífeyrisbætur eru það 42.000 manns. En eftir standa 18.000 manns á örorkulífeyri og yfir 7.000 á endurhæfingarlífeyri.

Hefur hæstv. ráðherra áhyggjur af þessari þróun? Ef hann hefur það, er eitthvað í farvatninu (Forseti hringir.) af hans hálfu til að stemma stigu við þessari þróun og einhverjar breytingar sem við eigum von á að sjá hér í þinginu?