fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég deili ekki þessari björtu sýn eða áhyggjuleysi hæstv. ráðherra af fyrirkomulagi almannatrygginga og þróuninni sem þar á sér stað. Til þess að setja þetta aðeins í samhengi af því að ég nefndi þessa tölu: Frumvarpið gerir ráð fyrir 337 milljörðum kr. í útgreiddar bætur af ýmsu tagi. Þá er kannski rétt að setja það í samhengi við tekjur ríkissjóðs af vinnandi fólki í dag. Tekjuskattur einstaklinga og staðgreiðsla eiga að skila í ríkissjóð 325 milljörðum kr. en bæturnar eru 337 milljarðar kr. Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af þessu? Að vinnandi fólk nái ekki einu sinni að afla ríkissjóði tekna til að greiða út bætur?
Ég hef af þessu mjög miklar áhyggjur og ég mun beita mér á þessum þingvetri fyrir því að gerð verði úttekt á þessum málum í háttvirtri velferðarnefnd og með aðkomu hæstv. ráðherra líka. Ég óska eftir því að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) taki vel í þá umleitan mína að standa fyrir reglulegum skýrslum um m.a. þær breytingar á almannatryggingakerfinu sem gerðar voru árið 2024, hverju þær hafi skilað og hverju þær skili núna ár frá ári.