fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína spurningu. Ég deili ekki sömu áhyggjum og hv. þingmaður hefur varðandi almannatryggingakerfið. Ég tel miklu mikilvægara að við séum með öflugt almannatryggingakerfi sem grípur fólk ef það lendir í áföllum, veikist illa eða missir atvinnu. Við erum með Fæðingarorlofssjóð og styðjum við barnafjölskyldur og foreldra, styðjum við tekjulága. Ég er bara þeirrar skoðunar, og verð þá bara að vera ósammála hv. þingmanni, að ég tel að einmitt þetta grunnkerfi okkar og almannatryggingakerfi sé með þeim hætti sem það er og það sé full ástæða til að efla það frekar en að veikja. Við fylgjumst mjög vel með þróuninni eftir breytingar á almannatryggingakerfinu og erum að fylgjast með því í rauntíma og ég get fullvissað hv. þingmann um að við séum með augun á þeim bolta.