158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:37]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnari Þór Ingólfssyni, fyrir hans ræðu og þeim hv. þingmönnum sem tekið hafa til máls um málaflokk ráðherrans. Fæðingarorlof er ekki aðeins stuðningur við foreldra og börn heldur mikilvægur jafnréttismálaflokkur. Viðeigandi og sanngjarnt fæðingarorlof stuðlar að jafnari ábyrgð foreldra, styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði og dregur úr því að barneignir hafi neikvæð áhrif á starfsþróun og framtíðartekjur kvenna. Jafnframt skiptir þátttaka á vinnumarkaði og trygging lífeyrisréttinda miklu fyrir fjárhagslegt sjálfstæði kvenna til lengri tíma. Ég vil líka draga það fram að þátttaka feðra í uppeldi barna sinna þegar þau eru ung styrkir samband föður og barns og því er mikilvægt að feður taki sinn hlut í fæðingarorlofi og njóti samvista við börn sín.

Frú forseti. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir verulegri aukningu í fjárveitingum til fæðingarorlofs. Mín spurning til ráðherrans er þessi: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra nýta þessa auknu fjármuni til að styrkja fæðingarorlofskerfið enn frekar sem jafnréttisúrræði og tryggja m.a. að foreldrar, einkum konur, haldi sterkri stöðu á vinnumarkaði og byggi upp fullnægjandi lífeyrisréttindi?