fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans spurningu. Ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að efla Fæðingarorlofssjóð og styðja við barnafjölskyldur og foreldra. Það hafa verið gerðar mjög mikilvægar breytingar á Fæðingarorlofssjóði, nú síðast varðandi afturvirkni breytinga, að hún taki til allra þeirra sem eru í kerfinu. Það sem við erum að skoða, og erum með í stöðugri skoðun, er hvað við getum gert til að gera enn betur. Við bættum stöðu fjölburaforeldra á síðasta þingi, sömuleiðis sorgarleyfi og það er fullt tilefni til að halda áfram þessari vinnu. Kannski þær breytingar sem ég sé nærtækastar er að kerfið hafi meiri sveigjanleika, t.d. gagnvart foreldrum sem eru áætlaðir inn í kerfið með full réttindi en kannski sökum þess að barn fæðist fyrir tímann þá falla niður réttindi eða þau eru ekki eins og lagt var upp með eða voru fyrirsjáanleg. Það er t.d. á meðal þeirra breytinga sem ég sé fyrir mér að væru næstar í röðinni.