fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Ég tel að fjárlagafrumvarpið endurspegli vel áherslur ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega hækkun inn í almannatryggingakerfið sem mun tengjast launavísitölu. Áætlaðar hækkanir þar eru um 7,3% um næstu áramót. Þetta styður mjög vel við stefnu ríkisstjórnarinnar, að sú kjaragliðnun sem hefur verið undanfarin ár og áratugi í þessum málaflokki er stöðvuð. Af hverju tala ég um þetta sérstaklega? Vegna þess að okkar sjónir eiga auðvitað að beinast að þeim fjölskyldum sem eru tekjulágar, búa kannski ekki við sömu tækifæri og aðrir í þessu samfélagi og það erum við svo sannarlega að gera. Ég held að ég taki það helst út úr fjárlagafrumvarpinu. Það er þessi aukning inn í Fæðingarorlofssjóð og líka hækkun í almannatryggingakerfið tengd launavísitölu.