fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu. Mig langar að beina orðum mínum aðeins að stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði. Í fjárlagafrumvarpinu er fjórum mikilvægum þáttum húsnæðisstuðnings breytt, öllum í sömu átt. Vaxtabætur eru felldar niður frá áramótum. Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði lækkar úr 35% niður í 20% sem eykur kostnað við byggingu og endurbætur. Fjármunir til hlutdeildarlána eru takmarkaðir um 5,5 milljarða kr. og stofnframlög til almennra íbúða lækka um 3 milljarða. Vissulega hefur dregið úr raunverði íbúðarhúsnæðis en vextir eru enn gríðarlega háir og greiðslubyrðin sífellt að þyngjast. Einmitt þess vegna gæti skapast tækifæri sem ekki hefur gefist í mörg ár. Þegar verð lækkar og vonir standa til þess að vextir lækki þá kemst ungt fólk lengra fyrir hverja krónu í stuðningi. Í stað þess að nýta það tækifæri dregur ríkisstjórnin úr stuðningi á öllum vígstöðvum og eykur um leið kostnað við uppbyggingu íbúða. Hæstv. ráðherra þekkir þessa stöðu vel því þegar hann sinnti því að vera formaður VR krafðist hann þess ásamt öðrum verkalýðsfélögum að stjórnvöld kæmu að borðinu vegna hárra vaxta og þungrar greiðslubyrði, sagði húsnæðismálin stærsta málið og hér áðan eitt stærsta kjaramálið og kallaði eftir trúverðugri áætlun stjórnvalda. Þáverandi ríkisstjórn brást m.a. við þessu í kjarasamningum 2024 með sérstökum vaxtastuðningi sem nam 6 milljörðum kr. Nú er hæstv. ráðherra sjálfur kominn í stöðu til að hafa áhrif, raunveruleg áhrif á þessi mál, en vaxtabætur eru felldar niður á meðan hann sinnir því ráðherraembætti.
Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Til hvaða beinu aðgerða ætlar ríkisstjórnin að grípa til að hjálpa ungu fólki að eignast sína fyrstu íbúð miðað við núverandi vaxtastig? Ég er ekki að tala um eitthvað til næstu ára heldur núverandi vaxtastig. Og hvaða úrræði stendur t.d. 21 árs konu til boða (Forseti hringir.) sem kaupir 20 ára gamla íbúð á höfuðborgarsvæðinu og á ekki rétt á hlutdeildarláni og fær heldur ekki vaxtabætur?