158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:48]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Hins vegar svaraði hann ekki endilega spurningunni minni þegar kemur að ungu konunni sem er að kaupa sér eldri íbúð. Hún fær þar af leiðandi ekki hlutdeildarlán en hún missir vaxtabæturnar núna um áramótin. Það verða ekki greiddar vaxtabætur. Hvaða beini stuðningur stendur henni þá til boða við það háa vaxtastig sem er í dag í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur fallið í því verkefni að ná tökum á verðbólgu og vöxtum í landinu og heimilin búa við himinhá vaxtagjöld?

Þegar hæstv. ráðherra var formaður VR taldi hann að stjórnvöld yrðu að koma að borðinu vegna vaxtabyrðar heimilanna. Því spyr ég aftur: Ætlar ráðherrann að gera eitthvað slíkt? Ef svo er, hvenær og hversu miklum fjármunum verður þá varið til þess? Hann kom inn á stofnframlögin áðan og vísaði til þess að það væri verið að draga úr þeim stuðningi vegna lóðaskorts en ríkisstjórnin myndi bregðast við ef það kæmi nægjanlegt lóðaframboð. Í ljósi stöðunnar og þess að það eigi að skila hallalausum fjárlögum, er raunhæft að koma til móts við slíkt ef lóðaframboðið eykst?