158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:49]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ítrekaða spurningu og nýja spurningu. Varðandi lóðaframboð og almenna íbúðakerfið þá hef ég ágætisinnsýn í byggingarmarkaðinn og hvað tekur langan tíma að byggja upp íbúðir, þar sem ég kom að uppbyggingu Bjargs íbúðafélags á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar á sínum tíma. Það er alveg ljóst að ef aukið lóðaframboð verður til þess að það sé hægt að byggja meira inn í kerfið þá muni það ekki hafa áhrif á stofnframlög innan kerfisins fyrr en eftir mögulega einhver ár héðan í frá talið.

Varðandi hina spurninguna: Við erum með í endurskoðun nýtt eða bætt húsnæðislánakerfi þar sem vaxtabótastuðningurinn hefur einfaldlega ekki virkað sem skyldi og starfshópur um það á að skila af sér innan skamms eða fyrir mars á næsta ári. Það eru gerðar áætlanir, ég hef sjálfur gert samninga um auknar vaxtabætur í gegnum kjarasamninga upp á einhverja milljarða sem verða síðan bara brot og brot af þeirri upphæð (Forseti hringir.) þegar upp er staðið vegna þeirra innbyrðisskerðinga í kerfinu. Við þurfum að finna nýjar leiðir, nýjar lausnir í þessu (Forseti hringir.) og það er full vinna í gangi í því.