158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:51]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir sína framsögu í dag og þátttöku í umræðum hér í þingsal. Ég er kannski á svipuðum stað og hv. þingmenn Guðlaugur Þór Þórðarson og Ingibjörg Isaksen. Ég er að reyna að átta mig á því fyrir hvað Flokkur fólksins stendur. Þá loksins þegar hann er kominn í þessa stöðu, að geta haft áhrif og situr í ríkisstjórn — hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talaði hér um skoðanir Flokks fólksins á nýja örorkukerfinu og hv. þm. Ingibjörg Isaksen um húsnæðisstuðning, þar sem orð forsvarsmanna flokksins virðast einhvern veginn hafa breyst töluvert. Ég vildi nefnilega halda áfram að ræða um stöðu barnafólks í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Þá lagði Flokkur fólksins einmitt áherslu á að hækka barnabætur. En nú þegar flokkurinn er kominn við ríkisstjórnarborðið og leggur fram þessi fjárlög kemur sem sagt í ljós annað árið í röð að barnabæturnar hækka ekki um krónu. Ég set þetta í samhengi við orð hæstv. forsætisráðherra sem var tíðrætt um er hún sat í stjórnarandstöðu og vitnaði þar í bandarískan stjórnmálamann sem sagði: Sýndu mér fjárlögin þín og ég skal segja þér fyrir hvað þú stendur. Því spyr ég hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra: Fyrir hvað stendur þú hvað þetta varðar? Er einhver ástæða fyrir því að barnabæturnar hafa ekki hækkað frá því að þessi ríkisstjórn tekur við völdum? Er þetta áhersluatriði Flokks fólksins eða er eitthvað annað sem veldur þessari forgangsröðun?

(Forseti (BergÓ): Forseti minnir hv. þingmenn á að ávarpa ráðherra með réttum hætti.)