158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:53]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Fyrir hvað stendur Flokkur fólksins og hv. þingmaður? Jú, fyrir þau mál sem við höfum barist fyrir. Vissulega eru barnabætur ekki að hækka og það hefði verið æskilegt að ná að hækka þær líka. En við höfum auðvitað gert mjög margt sem styður barnafjölskyldur. Við höfum gert margar mjög kostnaðarsamar og mikilvægar breytingar á fæðingarorlofskerfinu, m.a. komið á sorgarleyfi, lengt fæðingarorlofsgreiðslur, tekjutengingar, þar er gríðarleg aukning. Þetta eru áherslurnar núna. Við höfum gert mikilvægar breytingar fyrir ungar barnafjölskyldur varðandi hlutdeildarlánakerfið eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan. Eitt sem ég kom ekki inn á eru t.d. heimildir til að gera samninga við uppbyggingaraðila inn í hlutdeildarlánakerfið. Fyrstu samningar sem hafa verið gerðir hingað til urðu að veruleika síðasta vor. Síðan auðvitað almannatryggingakerfið — það hefur verið, ef ég má nota það orð, DNA hjá Flokki fólksins að styðja tekjulágar fjölskyldur, þá sem höllustum fæti standa í okkar samfélagi. Ég held að hvorki hv. þingmaður né aðrir í þessu samfélagi geti séð það eða fundið það út að við höfum ekki staðið við þær megináherslur sem flokkurinn hefur barist fyrir frá því hann var stofnaður.