fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir andsvarið en er þó auðvitað bara engu nær. Ég er að reyna að draga fram einhvern lit eða ástæður fyrir þeirri forgangsröðun sem birtist í fjárlögunum hvað barnabæturnar varðar, hverju það sætir annað árið í röð að þær hækka ekki um krónu. Yfir tveggja ára tímabil er um 9% raunlækkun að ræða. Ég er að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hverju þetta sætir. Hver stýrir þessari forgangsröðun? Ég hlýddi á hæstv. forsætisráðherra segja hér í pontu fyrr í dag að hún hefði viljað gera betur hvað barnabæturnar varðar og það væri, ef ég heyrði rétt, til skoðunar að breyta þessu jafnvel eitthvað, án þess að ég vilji fara nákvæmlega með það. Eru þetta áherslur Flokks fólksins, Samfylkingarinnar eða Viðreisnar?