158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:56]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu. Nú heyra barnabæturnar undir fjármálaráðuneytið en ekki þann málaflokk sem ég er að svara fyrir í fjárlögum í dag. Engu að síður vil ég taka undir með hv. þingmanni, ég hefði viljað sjá þessar bætur hækka. Hvað varðar þá málaflokka sem heyra undir mitt ráðuneyti tel ég okkur vera að gera góða hluti og styðja vel þá hópa sem heyra undir okkur og mitt ráðuneyti. Ég hef komið inn á í ræðum mínum oftar en einu sinni í dag að ég tel að besta kjarabótin fyrir fjölskyldur snerti stöðuna á húsnæðismarkaði; húsnæðiskostnaður almennt, hvort sem það er húsaleiga eða húsnæðislánin. Það er, eins og ég kom inn á áðan, vinna í gangi í ráðuneytinu við tillögur að breyttri nálgun og nýju húsnæðislánakerfi sem starfshópurinn mun skila af sér núna í síðasta lagi í mars á næsta ári, sömuleiðis líka frekari og mjög mikilvægar breytingar varðandi leigumarkaðinn.