fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Það bar vel í veiði hjá mér. Ég fékk annað tækifæri til þess að eiga orðastað við hæstv. ráðherra og halda svolítið áfram með þá umræðu sem við áttum hér um almannatryggingakerfið. Í seinna andsvari sínu nefndi hæstv. ráðherra að hann vildi auðvitað hafa öflugt almannatryggingakerfi og sæi þess vegna ekkert að þeirri þróun sem hefur verið núna með þessum miklu útgjöldum til bótakerfisins og ég nefndi að tekjur ríkissjóðs af vinnandi fólki væru lægri en útgjöld ríkisins af bótum almennt, þ.e. tekjur ríkissjóðs af staðgreiðslu og tekjuskatti.
Ég vil hins vegar nefna það líka að ég er sammála hæstv. ráðherra um að við þurfum auðvitað að hafa hér öflugt velferðarkerfi. Það er ekki samstaða um neitt annað hér í pólitísku samhengi eða í þjóðfélaginu og Ísland hefur byggt upp öflugt velferðarkerfi en það má þó ekki verða það öflugt að fólk sjái sér hag í að tékka sig inn í velferðarkerfið í stað þess að vera á vinnumarkaði. Af því hef ég miklar áhyggjur að það sé að gerast. Afleiðing af því snertir fyrst og fremst þá sem þurfa á þessu velferðarkerfi að halda, þ.e. þá sem minnst mega sín, þá sem mest þurfa að berjast fyrir hag sínum eða framfærslu sinni. Þeir bera skarðan hlut frá borði ef þeim fjölgar í þessu kerfi sem í raun þurfa kannski síður á því að halda og ég vildi bara árétta þetta. Það er þess vegna sem ég held að það þurfi að skoða þetta sérstaklega. Ég nefni sérstaklega fréttir um fjölgun erlendra ríkisborgara sem koma hér og hafa aldrei verið á íslenskum vinnumarkaði en tékka sig strax inn á framfærslu sveitarfélaga og þaðan inn í bótakerfi almannatryggingakerfisins. Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af þessari þróun sem fréttir hafa verið fluttar af undanfarna daga?