158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:00]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína spurningu. Ég er ekki sammála því að fólk geti tékkað sig inn á almannatryggingakerfið. Þetta er yfirleitt mikil þrautaganga sem fólk þarf að fara í gegnum til þess að fara á örorku eða eitthvað slíkt og það er svo sannarlega ekki val, held ég, í öllum þeim tilfellum sem ég þekki til.

Varðandi það mál sem hv. þingmaður er að vísa til um erlenda ríkisborgara sem leita til sveitarfélaga eftir framfærslustyrk get ég auðvitað ekki svarað því. Við erum með kerfi og ákveðið regluverk þar sem réttindi byrja að myndast eftir veru hérna í þrjú ár og full réttindi til 40 ára, þá eru þetta bara reglur innan kerfisins sem einstaklingar þurfa að falla undir eigi þeir rétt á að fá greiðslur. Það sem við höfum verið að gera núna, og það er t.d. í samráðsgátt, er reglugerð um ósanngjarna byrði. Ég tel að það sé mjög mikilvægt mál, þar sem sveitarfélög geta, ef þau meta það sem svo að fólk sé í rauninni eingöngu komið hingað til þess að komast inn á bótakerfið, vísað því til Útlendingastofnunar og eftir atvikum geti þá Útlendingastofnun tekið ákvörðun varðandi afturköllun á dvalarleyfi eða eitthvað slíkt. Þannig að við erum að bregðast við ákveðnum þáttum. Þó að ég geti auðvitað ekki tjáð mig um einstaka mál erum við að bregðast við í góðri samvinnu við sveitarfélögin.