fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Mig langar að leiðrétta misskilning eða að minnsta kosti árétta hvernig reglurnar eru varðandi t.d. útlendinga sem koma hingað. Það er ekki rétt að þeir þurfi að bíða í þrjú ár til þess að fá fjárhagsstyrk frá skattgreiðendum. Fjárhagsstyrk sveitarfélaganna hafa menn getað gengið í bara um leið og þeir lenda hafi þeir engar tekjur og lendi hér þannig að það eru greinilega fjölmörg dæmi um að útlendingar segi sig hér á sveitina. Eftir ákveðinn tíma tekur síðan ríkið við.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Stendur hann í þeirri trú að allt þetta kerfi okkar sé ekki misnotað, það sé engin misnotkun í þessu kerfi? Það kæmi mér á óvart ef hann ætlaði að svara því játandi. En ef hann svarar því neitandi eða telur að einhver dæmi séu um misnotkun, telur hann þá ekki nauðsynlegt að það sé upplýst um það og að viðvarandi rannsókn sé í gangi á mögulegri misnotkun? Ég myndi kalla eftir því að hæstv. ráðherra gæfi þinginu skýrslu um þessi atriði núna á þessum þingvetri og tel rétt að hæstv. ráðherra undirbúi það.