fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Það eru engin kerfi fullkomin eðli málsins samkvæmt og ég mun aldrei halda því fram að það sé ekki svindlað í neinum kerfum. Hvort sem það er skattkerfið okkar, almannatryggingakerfið eða önnur kerfi þá eru engin kerfi sem ég þekki til sem eru fullkomlega skotheld hvað það varðar.
Við höfum verið að leggja aukna áherslu á eftirlit. Þegar ég talaði um þriggja ára regluna talaði ég um þá reglu eða þau viðmið sem heyra undir bætur úr almannatryggingakerfinu. Ég get ekki svarað fyrir sveitarfélögin um það hvernig þau mál eru hanteruð. En reglurnar eru auðvitað þær varðandi fjárhagsaðstoð að hún fer eftir búsetu þess sem kemur til landsins eða býr í viðkomandi sveitarfélagi. Við höfum lagt áherslu á aukið eftirlit í almannatryggingakerfinu og nú síðast 2025 var staða forstöðumanns eftirlits endurvakin hjá Tryggingastofnun. Það hefur orðið til þess að fjöldi mála (Forseti hringir.) sem eru í fasa eftirlitsmála hefur sjaldan verið meiri hjá Tryggingastofnun en einmitt í dag.