fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og umræðurnar hér í dag og gott að sjá að hann er að hressast, gat ekki verið með okkur hér á föstudaginn. Það sem mig langar aðeins að velta upp hér eru húsnæðismálin, virðulegur forseti, og byrja á því að segja að þegar maður opnar fjárlögin og ætlar að fara að reyna að átta sig á því stóra máli, því risastóra máli sem við tölum ítrekað um hér á Alþingi, sem er staðan á húsnæðismarkaði, er hvað það er rýr umfjöllun um húsnæðisliðinn í fjárlögum. Þetta er um ein síða í fjárlögunum þar sem verið er að fjalla um þetta og markmið og mælikvarðarnir settir fram. Mér finnst alveg tilefni til þess, virðulegur forseti, að menn setji aðeins meira kjöt á beinin fyrir okkur þar til þess að átta okkur á því hvert stjórnvöld stefna í þessum málaflokki.
Að því sögðu langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um hlutdeildarlánin. Ég sé að hér er ein lína um þau undir markmiði 1: Húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, að hlutdeildarlán til fyrstu íbúðarkaupa verði efld enn frekar. Það er ekkert meira sagt um þetta. Við höfum enga hugmynd um hvernig á að gera þetta og miðað við þau fjárframlög sem fara til húsnæðismála á þessu ári sjáum við að miðað við fjárlagaárið 2026–2027 eru framlögin að fara úr 25 milljörðum í tæpa 22, niður um rúma 3 milljarða. Þannig að ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, hvort hæstv. ráðherra geti svarað mér aðeins varðandi hlutdeildarlánin, sérstaklega í ljósi þess að ég sé ekki að það sé gert ráð fyrir fjármunum í þau neins staðar.