158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:08]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Hlutdeildarlánakerfið og þær mikilvægu breytingar sem voru gerðar á því í desember síðastliðnum gerðu það að verkum að fjöldi þeirra sem hafa sótt um hlutdeildarlán hefur stóraukist og það er fullt tilefni til að skoða hvort sú þróun haldi áfram. Við erum ekki búin að fá endanlegt mat á því hvað það þurfi mikið inn í kerfið til að það nái að uppfylla allar þær umsóknir sem berast inn í það. Þær tölur liggja einfaldlega ekki fyrir. Þær þyrftu þá mögulega að koma inn á næsta ári eða í fjárauka ef það þyrfti einhverja viðbót.

Sömuleiðis er mjög ánægjulegt að segja frá því að eins og kerfið var hugsað í upphafi er opnað fyrir það að gera uppbyggingarsamninga við uppbyggingaraðila sem hafa verið að breyta fyrirætlunum sínum um uppbyggingu á húsnæði. Fyrsti samningurinn var gerður við Þingvang í Hafnarfirði sem fékk íbúasamsetningu og skipulagi breytt til þess að semja um uppbyggingu inn í kerfið. Við erum vongóð um að fleiri uppbyggingarsamningar séu fram undan þar sem verktakar hafa áhuga á að byggja inn í kerfið. Það er mikil þörf á því vegna stöðunnar á húsnæðismarkaði þar sem uppbyggingaraðilar og stjórnvöld þurfa sameiginlega að vinna úr því að þegar verkefnastaðan dregst saman þá má ekki undir nokkrum kringumstæðum hugsa til þess að byggingamarkaðurinn fari á viðlíka stað og hann fór eftir hrun þar sem hann fór nánast í algjört frost. Hlutdeildarlánin eru því á miklu betri stað en þau voru. Það sem við erum líka með til skoðunar er hvort við getum eflt þau til að þau nái til breiðari hóps fólks, breiðari tekjuhópa o.s.frv., en þær breytingar liggja ekki alveg fyrir og ekki kostnaðarmat á þeim heldur.