158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:10]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Hæstv. ráðherra staðfesti í raun og veru það sem mig grunaði, að sú aukning sem var til komin með breytingunni í fyrra, þar sem mun fleiri eru að sækja um hlutdeildarlán en áður, sem er jákvæð þróun, er ekki fjármögnuð hérna. Það fylgir því ekki fjármagn inni í þessum fjárlögum. Hæstv. ráðherra kom hér og sagði að mögulega þyrfti að koma með fjárauka á næsta ári, sem er bara fínt, en mér finnst alltaf skrýtið, virðulegur forseti, þegar við erum að leggja hér fram fjárlög með verkefnum innanborðs sem við vitum að eru ekki fjármögnuð og munu kalla á fjárauka næsta árs. En ég óska bara hæstv. ráðherra velgengni með það að fá aukið fjármagn í þetta verkefni. Sömuleiðis held ég að það séu mikil tækifæri í því, einmitt eins og hæstv. ráðherra sagði áðan, að útvíkka verkefnið enn frekar og að það nái til enn breiðari hóps. En ég deili áhyggjum mínum með hæstv. ráðherra hvað varðar fjármögnun á þessu verkefni.