158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:12]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Það er gott að vita til þess, og ég vissi það svo sem fyrir fram, að við erum sammála um mikilvægi kerfisins. Það var ánægjulegt að sjá hve vel breytingarnar í desember skiluðu sér inn í kerfið, þ.e. í fyrsta skipti eiginlega bara frá því að kerfinu var komið á byrjaði það að virka loksins, sem gefur fullt tilefni til að endurskoða frekari eflingu kerfisins og hvað við getum gert til þess að það nái til breiðari hópa. Þetta snýst ekki alltaf um aukið fjármagn. Þetta snýst líka um það að reyna að koma því fjármagni sem eyrnamerkt er ákveðnum málaflokkum út. Í stofnframlögum almenna íbúðakerfisins er okkar helsta áskorun að verkefnastaðan verði með þannig hætti hjá félögum sem starfa innan almenna íbúðakerfisins að þau stofnframlög sem við erum búin að eyrnamerkja eða það fjármagn gangi út til þeirra félaga og verkefnastaða verði þannig að uppbyggingin haldist áfram jafnt og þétt næstu árin.