breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegi forseti. Það er ekkert í þessum fjárlögum eða bandormi sem bendir til þess að tekið sé tillit til ábendinga fjármálaráðs. Ég vek athygli á því að fjármálaáætlunin var ekki einu sinni uppreiknuð núna í vor þannig að það er ekki verið að vinna eftir þessu eins og lagt er upp með. Núverandi ríkisstjórn á nú dágóðan hluta af þessum 860 milljörðum en hæstv. ríkisstjórn vissi af því og þeir forystumenn vissu alveg að hverju þeir gengu þegar þeir tóku við búinu. Það liggur alveg fyrir. Þeir geta ekki haldið því fram að þeir hafi komið bara með geimskipi og byrjað að lofa einhverju og hafi ekki vitað hver staða málsins væri. Á þeim forsendum lofuðu þeir ákveðnum hlutum, eins og að hækka ekki skatta á venjulegt fólk, en þetta er nú í fyrsta skipti sem ráðherra viðurkennir það í ríkisstjórninni að hafa hækkað skatta á venjulegt fólk, þótt allir sjái það.
Hæstv. ráðherra er tíðrætt um fjármagnskostnaðinn. Það hafa komið fram tillögur sem allar hafa verið felldar, m.a. um sölu eigna til að lækka fjármagnskostnað. Telur hæstv. ráðherra það ekki vera skynsamlegt til að lækka vaxtakostnað ríkisins og auka verðmætasköpun í þjóðfélaginu?