breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir síðari spurninguna. Ég fór þegar yfir með hvaða hætti hefur verið tekið tillit til athugasemda fjármálaráðs. Ég þarf ekki að endurtaka það en ég vil endurtaka það sem ég sagði hérna áðan: Í hvert einasta skipti sem þessi stofnun tekur ákvörðun um útgjöld sem eru ekki fjármögnuð þá er hún að senda skattareikning inn í framtíðina. Þannig er það bara og menn geta snúið sig út úr því eins og þeim hentar en þetta er raunveruleikinn, þetta veit öll íslenska þjóðin.
Varðandi sölu eigna þá held ég að þær leiðir séu allrar athygli verðar. Það þarf þó að hafa í huga að í einhverjum tilfellum er þar um að ræða eignir sem skila umtalsverðum arði og það er alls ekki víst að fjármagnskostnaður, alla vega ekki nettó fjármagnskostnaður ríkisins, lækki sem neinu nemur. Það fer algerlega eftir því hvort ávöxtun þeirra eigna er meiri eða minni en fjármagnskostnaður ríkissjóðs.