158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir spurninguna. Nú vil ég halda því til haga að aðhaldið í þessu fjárlagafrumvarpi er það mesta sem hefur sést í fjárlagafrumvarpi frá því einhvern tímann upp úr hruni. Menn geta auðvitað haft ýmsar skoðanir á því hvort það sé nægilegt eða ekki og ég ætla svo sem ekkert að kvarta yfir metnaði hv. þingmanns, það er bara gott að hún sé metnaðarfull. Það er hins vegar þannig að þessar viðbætur sem hv. þingmaður nefnir snúa að útgjöldum í heilbrigðiskerfinu sem að einhverju leyti falla óháð því hvað við ákveðum í þessum sal og þarf að gera ráð fyrir, eru hluti af vandamálinu sem við hér munum þurfa að takast á við á komandi árum, sem er öldrun þjóðarinnar og eðlileg þróun í þá átt að þessir útgjaldaliðir hækki, sem þarf að mæta með einhverjum hætti.

Varðandi verkefnið vil ég í þessu samhengi bara minna á það og biðja hv. þingmenn að skoða söguna og sjá hversu sjaldan ríkissjóður Íslands er rekinn réttum megin við núllið, í sárafáum tilfellum frá lýðveldisstofnun. Sem betur fer hefur það orðið ríkissjóði til bjargar að trekk í trekk hefur honum fallið til viðbótarfjármagn sem hefur rétt úr kútnum en það er bókstaflega talið á fingrum annarrar handar hvenær Alþingi hefur treyst sér til þess og ríkisstjórnir að skila hallalausum fjárlögum. Ég þakka fyrir þann mikla metnað sem hv. þingmaður Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hefur fyrir verkefninu en vil bara halda þessu til haga.