158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Þakklæti fyrir metnað minn kemur heimilum skammt. Ef við komum í ríkisstjórn gætum við gert eitthvað en ég gef líka lítið fyrir þetta hallaleysi miðað við verk þessarar ríkisstjórnar; 2025 var farið tugi milljarða fram úr, 2026 var mesta aukning ríkisútgjalda sem nokkur ríkisstjórn hefur farið í, og hvað? Þau eru að bæta enn betur í núna. Þau fela upplýsingar um hvernig skattar eru innheimtir. Af hverju? Af því að staðan er ekki nógu góð. Það er gott og vel að fá hallaleysi en það var kjörið tækifæri til að ná þessu hallaleysi með aðhaldi í ríkisrekstri og þannig hefðum við líka getað náð niður vöxtum og verðbólgu.

Mig langar að spyrja líka hæstv. ráðherra út í bandorminn: Hvar er fyrirsjáanleikinn í öllum þeim skattahækkunum og hvernig stendur stöðugleikareglan fyrir árið 2026?