158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir síðari spurninguna en í henni felast ásakanir sem ég tel nokkuð alvarlegar og ég tel rétt að fylgt sé eftir, um það að upplýsingum hafi verið haldið frá Alþingi. Ég kannast ekki við neitt slíkt. Ég bið hv. þingmann um að annaðhvort draga þessa fullyrðingu til baka eða færa rök fyrir því hvernig hún kemst að því (Gripið fram í.)að svo hafi verið gert vegna þess að það er alls ekki rétt og myndi aldrei gerast á minni vakt.

Varðandi síðan það mögulega viðbótaraðhald sem hægt væri að sýna þá vil ég aftur vísa til þess sem ég sagði áðan: Þetta er mesta aðhald sem sýnt hefur verið í fjárlagafrumvarpi frá því eftir hrun. Fullyrðingar um annað eru úr lausu lofti gripnar. Síðan get ég glatt hv. þingmann með því að segja honum að samkvæmt stöðugleikareglunni mega ríkisútgjöld, að teknu tilliti til tekjuráðstafana, hækka um 2% og að þessu sinni lækka þau um 1,1%. (NMG: 2026?)Nei, 2027. (NMG: Ég er að tala um 2026 …)Þær tölur er ég ekki með. (Gripið fram í: … hlusta betur.)