breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Ég þakka honum sömuleiðis fyrir samveruna í morgun á fundi SFF þar sem við vorum saman í pallborði þar sem mér þótti hæstv. ráðherra heldur hvumpinn, verð ég að segja. Skiljanlega kannski þegar maður þarf að tala þvert gegn sannfæringu sinni, sem ég efast ekki um að ráðherra þurfi að gera með framlagningu þessa bandorms, alla vega ef eitthvað á að marka fyrri orð Viðreisnar.
Gott og vel, við skulum vona að það skíni aftur sól í heiði hjá hæstv. ráðherra og við skulum vinda okkur hér að þessu frumvarpi. Mig langar að gera að umtalsefni mjög skýr loforð forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar um að það ætti ekki að hækka skatta á venjulegt fólk og vinnandi fólk. Mjög skýr loforð. Formaður Viðreisnar tók það sérstaklega fram að það yrðu engar breytingar gerðar á tekjuskatti. Í bandormi þessum er farið bakdyramegin að því að gera nákvæmlega það. Hvernig? Með því að gera breytingar á tekjuskattsþrepum þannig, og ég vek athygli á því, að hver einn og einasti launamaður í landinu er að borga hærri skatt í öllum skattþrepum og í öllum tekjutíundum. Allir á Íslandi eru að fara að borga hærri tekjuskatt. Þetta er sérstaklega rökstutt í frumvarpinu um að skattbyrði hafi lækkað mest m.a. í neðstu tveimur tekjutíundunum. Ráðuneytið er sérstaklega að varpa ljósi á að það þurfi að hækka skattana á fólk sem er með 450.000 kr. á mánuði. Ég vek athygli á því að þessi skattur á að skila 3 milljörðum. Það hefði verið hægt að sleppa þessu en samt skila hinu háheilaga núlli þar sem afgangurinn á að vera hvað? Jú, 5 milljarðar. Það hefði mátt sleppa þessu en samt skila hallalausum fjárlögum. Hvernig má það vera, hæstv. ráðherra, að þvert á mjög skýr gefin loforð sé ákveðið að senda þennan reikning til allra launamanna í landinu?