158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:47]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir útskýringuna. Ég er virkilega þakklát. Ég skildi þetta reyndar ágætlega. Ég hjó hins vegar eftir því að í útskýringum ráðherrans var hvergi nefnt að það átti vissulega að endurskoða þetta, en ekki fyrr en eftir ár. Ríkisstjórnin kýs hérna án neinnar sýnilegrar ástæðu nema að klípa enn þá meira af hverju einasta heimili í landinu að fara í þessa vegferð. Ráðherrann nefndi í engu að það væri verið að flýta því um eitt ár án nokkurs sýnilegs rökstuðnings né ástæðu.

Ég vil hins vegar venda kvæði mínu í kross í mínu seinna andsvari og nefna skattheimtu á ferðaþjónustuna. Samanlagt er sú skattheimta helmingurinn af samanlögðum hagnaði í fyrra, helmingurinn af ótrúlega mikilvægri atvinnugrein á Íslandi. Ég velti því fyrir mér, sérstaklega þegar við skoðum baðlónin og að það eigi að taka baðlónin úr 11% virðisaukaskattshlutfalli yfir í 24%. Ég hef heyrt stjórnarliða nefna að það sé eins og að fara í bíó o.s.frv. Það kemur mér spánskt fyrir sjónir því að ég geri ráð fyrir að ráðherrann átti sig á því að það skiptir máli þegar verið er að horfa á atvinnugrein hvernig samkeppnisstaða er innan hennar. Er sanngjarnt að taka baðlónin út fyrir sviga gagnvart annarri afþreyingu, ef við getum orðað það sem svo, innan greinarinnar? Er það sanngjarnt? Var gerð einhver greining á því hvaða afleiðingar það myndi hafa? Auk þess er íslensk ferðaþjónusta í mjög viðkvæmri samkeppni við löndin í kringum okkur. Hvar? Ferðaþjónustan er jú alla jafna í lægra skattþrepi. Af hverju? Því við erum í samkeppni við önnur lönd.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hann engar áhyggjur af þessari stöðu og voru gerðar greiningar, eitthvað áhrifamat á áhrifunum af því sem þetta getur valdið?