breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir síðari spurninguna. Nú er á allan hátt óeðlilegt að bera þær tillögur sem eru í fjárlagabandormi um gjaldtöku af ferðaþjónustu saman við hagnað ferðaþjónustunnar. Ástæðan fyrir því er í sjálfu sér mjög einföld. Innviðagjaldið er innheimt beint af ferðamanninum, það er ekki innheimt af fyrirtækjunum eða alla vega er það sú hugmynd sem unnið er með í atvinnuvegaráðuneytinu sem þýðir að einu áhrifin sem gætu þá komið fram eru afleidd áhrif vegna minni eftirspurnar. Sama á í sjálfu sér við um breytingu á virðisaukaskatti. Virðisaukaskattur er vörsluskattur og að öllum líkindum má reikna með að honum verði velt út í verðlag þessarar þjónustu eins og jafnan er um virðisaukaskatt sem þýðir að áhrifin er ekki hægt að setja í samhengi við hagnað. Þarna á milli eru engin bein tengsl og greiningarnar hafa fyrst og fremst falist í því að skoða þróun á verði þessarar vöru og eftirspurn eftir henni.