breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna hér áðan, um margt mjög athyglisverð. Það er margt mjög athyglisvert sem hefur komið fram í þessari umræðu og andsvörunum hér og eitthvað sem ég held að við þurfum klárlega að leggjast yfir í efnahags- og viðskiptanefnd.
Það sem mig langar hins vegar að ræða við hæstv. ráðherra eru þessar krónutöluhækkanir upp á 5,2% sem við erum að sjá hér í þessum bandormi. Það sem ég er að velta fyrir mér er einfaldlega að nú segir í fjárlagafrumvarpi hæstv. fjármálaráðherra að áætluð verðbólga, og sú verðbólga sem við erum að miða við í fjárlögunum fyrir næsta ár, sé 3,6%. Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að hún lækki skarpt eftir áramót og verði að meðaltali 3,6%. Því velti ég því fyrir mér og langar beinlínis að spyrja hæstv. fjármálaráðherra að því: Af hverju sú tala var ekki notuð í krónutöluhækkuninni? Hefði ekki verið miklu eðlilegra að nota verðbólguvæntingar og spá Seðlabankans fyrir næsta ár heldur en að fara langt upp fyrir hana í 5,2%?
Við sjáum hvernig markaðurinn brást við. Verðbólguvæntingar fóru upp. Þannig að spurningin mín er í raun og veru bara hvort hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra geti útskýrt fyrir mér, og okkur hér inni, af hverju við fórum í 5,2% en ekki 3,6% og hverju það hefði breytt ef við hefðum notað töluna 3,6% upp á áhrif á verðbólguvæntingar. Hvað metur hæstv. fjármálaráðherra að breytingin hefði verið ef 3,6% hefðu verið notuð varðandi væntingar á markaði?