breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisandsvar og ég fagna því að fá spurningar sem þessa. Nú skulum við ræða hvað við getum gert. Hv. þingmaður byrjaði að ræða eignasöfnin og ég mun nota þessar tvær mínútur sem ég hef til að svara því. Landsbankinn t.d. er í samkeppnisrekstri og við þekkjum það að það er líka áhætturekstur. Við vitum að ef við myndum selja hann þá gætum við greitt niður skuldir og þar af leiðandi myndi þessi stóri liður, þ.e. fjármagnsskuldbindingar eða vextir — tölum bara íslensku, bara mannamál — þeir myndu lækka. Isavia er líka í samkeppnisrekstri og það er mjög sjaldgæft að félag eins og Isavia sé í ríkiseigu, sérstaklega sjaldgæft að það sé í fullri ríkiseigu. Ef ég man rétt snúast tillögur okkar um að selja hlut af því. Það myndi lækka fjármagnskostnaðinn en myndi örugglega líka geta skapað tækifæri vegna þess að það skiptir máli fyrir okkur að Keflavíkurflugvöllur og Isavia standi sig vel í samkeppninni.
Sama má segja um Landsnet. Það er ekki um það að ræða að selja meiri hlutann í því en það er enginn vafi í mínum huga að langtímafjárfestar hefðu áhuga á því að koma að því borði enda eru slíkar fjárfestingar oft eitthvað sem hentar t.d. lífeyrissjóðum og öðrum slíkum, þó að það fyrirtæki yrði áfram rekið innan mjög þröngs reglugerðarramma eins og er í dag.
Varðandi ÁTVR — sko, seljum eignirnar. Við þurfum ekkert á þessu að halda, fyrir utan allar eignirnar sem ríkið á. Ef þú keyrir um sveitir landsins og sérð býli sem er illa farið og er ósómi að þá eru allar líkur á að það sé í eigu ríkisins. (Forseti hringir.) Það skapast ekki tækifæri, og við erum að glata tækifærum og verðmætasköpun, (Forseti hringir.) þegar við erum að halda í þessar 300 jarðir sem ríkið á.