158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[16:49]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur kærlega fyrir fyrirspurnina. Ég ætla að byrja á að segja áður en ég fer lengra inn í efnið að ég hef ekki lesið þessa skýrslu sem hv. þingmaður vitnar hér til og þekki ekki efni hennar þar af leiðandi. En auðvitað snýst þetta alltaf um aðstæður og aðstæður á markaði. Það geta verið allt aðrar aðstæður núna en voru fyrir þremur árum, fimm árum eða sjö árum, og eru allt aðrar aðstæður. Þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt þegar við erum að taka þessar ákvarðanir, hvort sem það er með bankaskatt eða aðra skattheimtu, að við skoðum í hvaða ástandi og efnahagsástandi við gerum það. Ég vil bara segja varðandi bankaskattinn: Jú, það getur vel verið að það sé hægt að leggja á bankaskatt. En hvað þýðir það? Hvert mun hann fara? Mun hann fara út í verðlagið? Já, ég óttast það.

Í greinargerðinni með frumvarpinu sem við erum hér að ræða er t.d. talað um að þetta geti og muni að öllum líkindum hækka útlánsvexti og vaxtakostnað af 50 millj. kr. óverðtryggðu láni með breytilegum vöxtum um 30.000 kr. á ári. Ég veit að þetta eru ekki miklir peningar. Þetta segir í frumvarpinu sjálfu. Bankinn sagði í morgun, ef ég man rétt, að þetta myndi skerða útlánagetu bankanna um 50 milljarða. Hvað þýðir það fyrir ungt fólk í dag eða þá sem vilja reyna að fá lán? Þetta þurfum við að skoða í nefndinni og á meðan við höfum ekki þessar upplýsingar og meðan ég hef ekki þessar upplýsingar nema bara í einhverju fyrirsagnaformi (Forseti hringir.) hef ég áhyggjur af því með þennan skatt, eins og alla þessa skatta hér, að þetta muni fara út í verðlagið og við séum að pissa í skóinn okkar.