breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Varðandi bílaleigurnar og arðsemina er það bara eitt af því sem við þurfum að fá bílaleigurnar og ferðaþjónustuna til þess að svara inni í efnahags- og viðskiptanefnd. Væntanlega skýrist þetta að einhverju leyti af því að við vitum að ferðaþjónustan er búin að selja mjög mikið fram í tímann. Þannig að það er búið að greiða fyrir hluta af bæði gistingu og bílaleigubílum fyrir árið 2027 sem bílaleigurnar þurfa væntanlega að taka á sig með hækkandi kílómetragjaldi.
En það er ekkert rosalega langt síðan við í Framsókn, af því að hv. þingmaður var að tala um Framsóknarflokkinn og meðalhófið og miðjuleiðina og samstarfið sem við erum fræg fyrir, stóðum hér í þinghúsinu og vorum með okkar efnahagstillögur sem fólust m.a. í að lækka skatta (Forseti hringir.) á eldsneyti, sem var síðan gert. Við töluðum um þjóðarsátt, sem ég heyri að hv. þingmaður er að tala fyrir núna, og hæstv. forsætisráðherra, og við töluðum um lækkun á matarskatti. Þannig að ég er bara nokkuð glaður í dag með þetta, mér sýnist þetta allt vera að stefna í okkar átt.