breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir prýðisræðu enda þingmaðurinn ágætlega að sér í þessum málaflokki og hefur töluverða reynslu. En mig langar að staldra við hugtakið framleiðniviðmið, því það er einmitt dæmi um skattahækkun sem hverfur inn í tæknilegt orðalag. Að setja framleiðniviðmið í 0 — hvað þýðir það? Ætli almenningur átti sig á því? Með því að setja framleiðniviðmið í 0 árið 2027 og hækka skattleysis- og þrepamörk minna en þau hefðu annars gert er talað um að ríkissjóður taki inn rúma 3 milljarða. Þetta leggst ekki bara á eitthvert fyrirtæki úti í bæ, þetta leggst á allt launafólk. Var ekki sagt einhvers staðar að það ætti ekki að auka skatta á venjulegt vinnandi fólk og það ætti ekki að plata? Fólk fær ekki sérstakan skattseðil þar sem stendur: Nýr skattur, ekkert framleiðniviðmið. En niðurstaðan er sú sama og ríkið heldur eftir stærri hluta launa fólks en ella hefði orðið. Þá finnst mér mjög mikilvægt að við ræðum þessa framleiðni, að það eigi að taka hana af; að fólk eigi að njóta góðs af henni en ekki í gegnum sjálft sig heldur í gegnum ríkið. Þá vil ég spyrja hv. þingmann: Af hverju á launafólk að sætta sig við að framleiðniviðmið sé sett niður í 0 til að afla ríkissjóði 3,1 milljarðs kr.? Er þetta ekki einfaldlega skattahækkun á launafólk falin inni í tæknilegri breytingu á skattkerfinu? 3,1 milljarður tekinn af öllu launafólki vegna þess að 1% framleiðniviðmið er tekið af fólki.