breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir fyrirtaksfyrirspurn hér varðandi framleiðniviðmiðið. Spurningin til mín var á þessa leið: Af hverju á fólk að sætta sig við það? Ég veit ekki af hverju fólk á að sætta sig við það. Ég lagði þetta ekki fram og er ekki sammála þeirri nálgun sem kemur fram í þessum lögum eða þessum bandormi þar sem þetta kemur fram.
Mér finnst þetta bara hárrétt sem hv. þingmaður segir. Hér er verið að lauma inn bakdyramegin skattahækkun og ekki bara á einhvern einn hóp eða einhverja eina tekjutíund. Þetta bara kemur á alla. Það munu allir finna fyrir þessu. Þetta er skattahækkun, eins og hv. þingmaður segir, upp á 3,1 milljarð. Þannig að, já, það er svo sem lítið sem maður getur sagt um þetta annað en bara tekið undir með hv. þingmanni og áhyggjum hans hvað þetta varðar. Ég held að þetta nafn sé þannig til þess fallið að fólk kveiki ekki á perunni hvað þarna er raunverulega í gangi. En þess vegna bara mjög gott, bæði hjá hv. þingmanni og eins hv. þm. Hildi Sverrisdóttur, sem hefur verið að benda á þetta, að benda á að þetta er bara skattahækkun á almenning, á alla. Hvað verður veit maður ekki en eins og þetta er lagt fram er þetta 3,1 milljarður af annars 34 milljarða kr. skattahækkun þessarar ríkisstjórnar í ár, ofan á þá rúmlega 30 sem voru í fyrra.