breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir gott svar. Í raun var ég ekki að reyna að krefja hann um svör við því hvers vegna þetta væri svona, frekar að deila með honum mínum vangaveltum.
Ég vil beina sjónum mínum að kílómetragjaldinu. Það stendur skýrt í bandorminum að hækkunin sé ekki bara 5,2% verðlagsuppfærsla heldur að auki 4 milljarðar í tekjuauka fyrir ríkissjóð, tekjuauka, skattahækkanir. Þetta er ekki einhver tæknileg uppfærsla heldur er þetta meðvituð viðbótarskattheimta. Hún leggst ekki jafnt á alla. Hún bitnar sérstaklega á fólki sem þarf að aka mikið, ekki síst utan höfuðborgarsvæðisins, og á fyrirtækjum þar sem akstur er stór hluti rekstrarkostnaðar. Þegar akstur verður dýrari verður flutningur dýrari. Þegar flutningur verður dýrari fer hluti þess kostnaðar út í verðlag.
Þá spyr ég hvort hv. þingmaður sé mér sammála. Hvað réttlætir 4 milljarða viðbótarskatt á akstur (Forseti hringir.) á sama tíma og ríkisstjórnin segist vilja draga úr verðbólgu og bæta stöðu heimila og fyrirtækja?