158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[17:18]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Helgasyni fyrir yfirferðina. Ég verð að fá að taka undir sitthvað af því sem kom fram í máli hans, ekki síst þegar vikið er að því að nú koma fram fjárlög og yfirlýsingar þess efnis, og upplýsingar í bandormi og í öðrum gögnum, að hér standi til að fara í víðtækar gjaldskrárhækkanir á línuna sem nema 5,2%, þ.e. í takt við ársverðbólguna eins og hún var. Það er pólitísk ákvörðun að gera það þegar margir aðrir hafa bent á að æskilegra sé í þessu árferði að senda allt önnur skilaboð, með því að fara frekar í 2,5% hækkanir o.s.frv. Síðan er, eins og hv. þingmaður bendir á, ekki fyrr búið að tilkynna um þetta en farið er að draga í land og farið að vísa til þess að nú standi yfir þreifingar milli aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda og að í þeim samtölum sé alveg eins líklegt að menn geri ákveðnar breytingar á þessari 5,2% hækkun. Engu að síður er ákveðinn skaði skeður, ef svo má segja, þ.e. það er búið að boða þessar hækkanir, leggja þær fram og bera þær á borð fyrir alla alþýðu manna og viðeigandi aðila markaðarins sem taka slíkar upplýsingar og bregðast við þeim. Skuldabréfamarkaðurinn tekur þetta inn sem upplýsingar frá stjórnvöldum og menn fara að reikna þetta inn í allt mögulegt á þeim markaði. Þar eru undirliggjandi mælikvarðar eins og verðbólguvæntingar sem síðan spila með verðbólgunni. Ég velti fyrir mér hvert mat hv. þingmanns er á þessum vinnubrögðum, hvort þetta sé endilega, ja, ég meina — ef menn fara í þá átt að lokum að draga þetta til baka, til hvers var þá farið af stað? Og hvað erum við þá eiginlega að gera hérna í grunninn? Hefur hv. þingmaður einhverja skoðun á því?