158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[17:25]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Ég get svo sannarlega tekið undir það. Það á svo sem við um Ríkisútvarpið, held ég, eins og í sjálfu sér margs konar starfsemi hins opinbera, að við þurfum að ganga dálítið öll í takt. Það er vont að senda þau skilaboð út í þjóðfélagið, til fyrirtækja og inn í alls konar starfsemi, að nú þurfi að herða að. Þegar tilfinningin er kannski sú að sjálft ríkisvaldið, stofnanirnar, sé að fara um sjálft sig mýkri höndum, skulum við orða það til að taka mjög diplómatískt til orða. Í þessu samhengi má t.d. minna á eitt sem ég hef mikið saknað hjá þessari hæstv. ríkisstjórn þegar kemur að þessum málum, efnahagsmálunum og ríkisfjármálunum, sem eru afdrif hagræðingartillagnanna ágætu sem voru unnar í byrjun kjörtímabilsins með pomp og prakt. Það er margt gott í þeim tillögum, svo það sé sagt. Afskaplega lítið af þeim hefur komið til framkvæmda. Það verður að segjast. Hagræðingar- og aðhaldskafli þessara fjárlaga er miklu meira þeim megin að hann gengur út á tilfærslur milli ára. Það er verið að draga úr framkvæmdum hér og þar en það vantar, finnst mér, að það sé aðeins verið að ýta til baka, takast á við kerfið. Við sjáum t.d. að nýr meiri hluti í Reykjavíkurborg hefur farið í slíkar aðgerðir. Þær eru vitaskuld ekki skemmtilegar, þær eru afskaplega sársaukafullar og útheimta erfiðar ákvarðanir. En með því erum við kannski líka að senda þau skilaboð að við þurfum að byrja á okkur. Við þurfum að taka til hér og vera óhrædd við allt slíkt. Við getum ekki annars krafist þess að allir hinir geri slíkt hið sama ef það á eitthvað annað að gilda um hið opinbera. Þetta snýst oft svolítið um skilaboðin, signalið, og ég tek Ríkisútvarpið alls ekki út fyrir sviga í þeim efnum.