158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[17:27]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að byrja á að þakka þingmanninum fyrir ræðuna sína. Hún var mjög áhugaverð. Mig langar kannski aðeins að ræða við hann um skatta. Ég er ekkert hrædd við þetta orð, skattar. Fyrir mér eru skattar auðvitað bara tekjur ríkissjóðs til að borga fyrir samneysluna, til að borga fyrir heilbrigðiskerfið, menntakerfið, innviði landsins, þannig að mér finnst ekkert óþægilegt að nota orðið skattar, skattar, skattar, mér finnst þetta bara alls ekki óþægilegt. En ég vil fá að vita í hvað skattarnir mínir fara og ég vil að þeim sé ráðstafað vel. Nú er það þannig að halli ríkissjóðs jókst um 860 milljarða frá 2019, um 115 milljarða á hverju einasta ári og staðreyndin er sú að í gegnum þessi áföll sem við lentum í, Covid, jarðeldana á Reykjanesi og fleira, jukust ríkisútgjöld gríðarlega og þau voru fjármögnuð með lántökum og þær lántökur erum við að greiða núna sem veldur því að við erum að borga núna 168 milljarða í vaxtagjöld. Ég hef þess vegna verið talsmaður þess og styð þá leið að við förum blandaða leið af hagræðingu, sem er upp á 44 milljarða samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, og svo nýjum tekjum. Ég gat ekki heyrt það í ræðu þingmannsins hvar hann getur hugsað sér að taka þessar nýju tekjur. Ég veit að þeir sem sömdu fjárlagafrumvarpið horfðu á þá geira þar sem arðsemin er mest, til að mynda hjá fjármálafyrirtækjunum. Hagnaður þeirra hefur verið langt umfram þeirra eigin væntingar. Og ég bara spyr: Ef við hugsum þetta þannig: Ríkissjóður er sameign þjóðarinnar og ef við ættum að reyna að vinna að heilbrigði hans, hvert myndi hv. þingmaður leita til þess að auka heilbrigði hans ef ekki má horfa í fjármálafyrirtæki og baðlón?