breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Taka einhver lán, held ég að sé mjög vægt til orða tekið, af því að þetta voru gríðarlegar lántökur. En mig langar að ræða hérna ferðaþjónustuna eins og hv. þingmaður skorar á mig að gera. Ég heyrði það í ræðu hans áðan að hann skildi ekki þá röksemd að baðlón yrðu undanskilin þessum skattafslætti, færu bara í almenna virðisaukaskattsþrepið, yrðu ekki í undanþáguþrepinu. Honum fannst það eitthvað sérkennilegt, ef ég skildi hann rétt. Þar er ég honum bara hjartanlega ósammála því að mín sýn er sú að ferðaþjónustan sé ein mest gjaldeyrisskapandi atvinnugrein landsins. Hún er stór og stöndug og ég er gríðarlega stolt af ferðaþjónustunni og hvernig hún hefur vaxið í gegnum árin og skapað fjölbreytt störf. Ég á bara erfitt með að réttlæta fyrir mér af hverju hún ætti að vera í undanþáguþrepinu. Sveitarfélag sem er að byggja leikskóla borgar 24% virðisaukaskatt á meðan baðlón borga bara 11%. Þannig að við verðum kannski að horfa á þetta í stærra samhengi. Ég hvet þingmanninn til þess að horfa á ferðaþjónustuna sem stóra og stönduga grein. Ég horfi á hana þannig og tel að hún geti lagt til samfélagsins eins og aðrar atvinnugreinar, að hún sé bara komin á það kalíber. Þetta er ekki hobbí. Þetta er bara alvöru atvinnugrein sem getur lagt til samfélagsins eins og aðrar og hjálpað okkur í gegnum þessar erfiðu aðstæður sem við erum í. Ég fer ekkert undan því að það urðu erfið efnahagsleg áföll á síðasta kjörtímabili. En við erum svolítið að borga fyrir það núna og þess vegna spyr ég þingmanninn í seinna andsvari hvort hann sé ekki sammála því að það sé heppilegast að fara blandaða leið tekjuöflunar og hagræðingar eins og gert er í þessu fjárlagafrumvarpi.