158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[17:53]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Jú, það er stór munur á því að reka heimili, reka fyrirtæki eða að reka ríkissjóð. En grundvallarmálin eru þau sömu: Ef þú eyðir of miklu þarftu að draga úr útgjöldum. Og ég tala nú ekki um hver munurinn er, að ríkissjóður er pottþétt með meiri sóun en flest rekin fyrirtæki hér á landi. Þannig að tækifæri ríkissjóðs eru miklu meiri, fullyrði ég, í flestum tilfellum en tækifæri fyrirtækjanna. Svo er auðvitað alltaf verið að leggja manni orð í munn: að hvergi megi taka. Nei, ég sagði aldrei neitt um það.

Hins vegar sagði ég að við værum í þeirri stöðu að við værum með ríkisstjórn sem lofaði því að hækka ekki skatta. Hún er að svíkja það. Ég hefði líka lofað því og ég hefði staðið við það. Það er talað um að draga saman um 1,1%. Nei, þið eruð að auka útgjöld um 80 milljarða milli ára. Raunútgjöld eru að aukast um 20 milljarða. Þetta 1,1% er jú vissulega hlutfall af vergri landsframleiðslu. (Forseti hringir.) Við eigum eftir að sjá það raungerast. En það breytir því ekki að þið eruð að auka útgjöld milli ára.