158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[18:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir spurninguna. Þetta er sennilega ein erfiðasta spurningin því að ég skil ekki alveg þessa vegferð ríkisstjórnarinnar. Þetta er einhvern veginn — að setja þetta út þannig að það er strax farið að hafa neikvæð áhrif, þetta hefur áhrif á verðbólguvæntingarnar. Ég veit ekki hvort þetta var leikrit frá upphafi eða hvort þetta voru svona eftiráskýringar en svona er þetta alltaf. Það er eitt sagt en annað gert. Ríkisstjórnin segist vera í góðu samtali við verkalýðshreyfinguna en verkalýðshreyfingin kannast ekki við það. Ég óttast að þó að þau geri eitthvað í þessu — hvað þá? Þau munu ekki fara í aðhald til að vega upp á móti krónutöluhækkununum. Ætlum við að hækka skattana frekar? Þannig að ég veit ekki alveg hver hugsunin er.