158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[18:34]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að við hljótum öll að vera sammála um að koma í veg fyrir bótasvik, grípa til aðgerða þar sem þau sannast og eðlilega þarf að hafa virkt og gott eftirlit með slíku. Þarna erum við kannski komin nokkuð út fyrir efni sjálfs bandormsins en auðvitað skiptir þetta máli.

Það eru ákveðnir útgjaldaliðir sem hafa farið vaxandi á undanförnum árum, annars vegar velferðarkerfið og hins vegar heilbrigðiskerfið, og það er auðvitað svo auðvelt að fara þá leið sem þessi ríkisstjórn fer, þ.e. að vera með einhvers konar málamyndaaðhald sem er sáralítið, að lækka fjárfestingarframlögin. Það er í raun og veru bara frestun á útgjöldum, engin raunveruleg forgangsröðun, bara verið að fresta skuldadögum og hækka svo skatta á fólk og fyrirtæki í landinu og þá finnst mér einmitt athyglisverðast hver fórnarlömb ríkisstjórnarinnar eru. Það er einhvern veginn eins og atvinnustarfsemi sé dregin í dilka út frá einhvers konar ætluðum lúxus, þ.e. að það sé einhvern veginn eðlilegt, vegna þess að aðgangseyririnn að baðlónum er kannski býsna hár, að skattleggja þau umfram það sem önnur ferðaþjónusta þarf að greiða. Allt kemur þetta auðvitað til af ástæðu og ég hygg að þessi (Forseti hringir.) — ég sé að tíminn minn er búinn. En allt kemur þetta til af ástæðu og það er sem sagt verið að höggva nærri atvinnuvegunum í landinu.