breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég verð eiginlega að byrja á að nefna það, frú forseti, að ég vék talsvert að þeim málum sem mest hafa verið til umræðu hér í dag í umræðum um fjárlagafrumvarpið í síðustu viku og undir þeim formerkjum hvort verið væri að fara í þá átt sem landsmenn máttu vænta af þessari ríkisstjórn. Svarið við því er kannski ekki svo einfalt því að ef marka má orðræðu ríkisstjórnarflokkanna fyrir kosningar er svarið algjörlega nei, hreint nei, algjörlega tært nei. Það er allt önnur stefna sem er rekin hér en boðuð var fyrir kosningar.
Ef maður nálgast þessa spurningu hins vegar út frá því að hafa kannski dálítið lengi verið að fylgjast með pólitík get ég ekki sagt, frú forseti, að það komi mér mikið á óvart að ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar keyri hér hart á skattahækkanir. Það eru hins vegar kannski meiri tíðindi fólgin í því að flokkur sem hefur kennt sig við frelsi og frekar hægrimennsku skuli vera sá flokkur sem þarf nú að innleiða þetta í gegnum sinn ráðherra, þ.e. hæstv. fjármálaráðherra. Því að það er eðlisólíkt í því sem hér er til umfjöllunar og oft er þegar verið er að nota frasa eins og: Er þetta ekki alltaf svona? Er ekki alltaf helmingurinn af loforðunum svikinn? Er það ekki bara pólitík? Er þetta ekki alltaf þannig þegar flokkar lofa einhverju í kosningabaráttu og svo þurfa þeir að búa til ríkisstjórn og þá þurfa þeir að miðla málum og eftir því sem flokkarnir eru fleiri er málamiðlunin meiri o.s.frv.?
Frú forseti. Í þessu tilfelli á þetta hins vegar ekki við því að það sem er svo sérstakt við sum af þessum afgerandi loforðum — sem voru ekki orðuð neitt loðið — er að landsmenn voru ekki skildir eftir með það verkefni að eiga í einhverjum vandræðum með að túlka það sem sagt var. Þau voru ekki sett fram með loðnum hætti. Þau voru sett fram með mjög heiðarlegum hætti og það var gert eftir kosningar líka. Það er nú kannski það sem er svolítið fréttnæmt í þessu öllu saman þegar við ræðum hér fjárlagafrumvarpið og svo bandorminn að skýrustu loforðin sem gefin voru af ríkisstjórnarflokkunum er varða efnahagsmálin voru nefnilega gefin ítrekað eftir kosningar líka og þegar var verið að kynna samstarfið. Þar heyrðum við, landsmenn allir, skýr loforð og setningar á borð við: Við munum ekki hækka eða færa virðisaukaskattinn upp á ferðaþjónustunni, við munum ekki hækka tekjuskatt og skatta á venjulegt, vinnandi fólk. Þið þekkið þetta, ágætu landsmenn, þið þekkið þetta allt saman.
Það sem ég er að benda á hér er að þetta var ítrekað eftir kosningar þegar verið var að mynda ríkisstjórnina vegna þess að loforð í aðdraganda kosninga hvað varðar þessi mál milli Samfylkingar og Viðreisnar voru tiltölulega samhljóða. Það átti að beita þessari frægu sleggju, berja niður vexti og verðbólgu og ekki hækka skatta á almenning í þessu landi eða fyrirtækin og ekki fara inn í virðisaukaskattsþrepaumhverfi fyrirtækjanna. Þetta var allt saman í beinni útsendingu og eflaust mörgum Íslendingum í fersku minni.
Það er það sem er kannski fréttnæmast í þessu því að þau þurftu ekki að semja sig frá loforðunum, frú forseti, eins og flokkar hafa stundum þurft að gera í gegnum áratugina, að gefa eftir einhvern hluta af sínum loforðum til að ná öðrum málum í gegn sem þeir meta mikilvægari og komast þannig áfram í valdastöður í samfélaginu til að koma sinni hugsjón, a.m.k. að verulegu leyti, áleiðis. Þessir flokkar bjuggu við þann lúxus, ef svo má segja, að vera samhljóða hvað þetta varðar í kosningabaráttunni og vera samhljóða hvað þetta varðar að loknum kosningum þegar var verið að kynna áherslur ríkisstjórnarinnar. Samt, frú forseti, er þetta svikið.
Hæstv. forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á dögunum: „Loforð gefin — loforð efnd.“ Þetta er einhver hlægilegasti orðaleikur sem hefur átt sér stað það sem af er starfstíma þessarar ríkisstjórnar og er af nógu að taka í öllum nýyrðasmíðunum sem ég hygg að þessi ríkisstjórn eigi nú Íslandsmet í, a.m.k. innanhúss. Loforð gefin — loforð efnd. Það er nefnilega þannig, frú forseti, að loforðin sem voru gefin fyrir kosningar og ítrekuð með mjög afgerandi hætti eftir kosningar hafa verið svikin í efnahagsmálunum í öllum meginatriðum þegar kemur að því að sækja meira fé til landsmanna.
Eðli málsins samkvæmt er búið að ræða hér mikið um baðlónin og kílómetragjaldið. Ég hyggst nú láta það kannski að mestu liggja í þessari umferð því að ég gerði því nokkuð góð skil í síðustu viku í ræðu þar. Þar nefndi ég líka fyrirhugaða sölu, eða eins og það er orðað, aðra ráðstöfun á flugstöðvarbyggingunni á Húsavíkurflugvelli sem er auðvitað, ef af yrði, alveg ótrúleg skammsýni núna þegar verið er að vinna á fullu með Landsvirkjun og stórum erlendum fyrirtækjum að því að koma álveri í uppbyggingu af stað á Bakka aftur og Þeistareykjavirkjun er í stækkunarfasa. Það er einmitt núna, held ég, mjög mikils virði að fara í að lagfæra þetta húsnæði og tryggja það á þessum uppgangstímum sem ég vona að séu fram undan, verði þessi flugleggur opinn.
Annað sem hefur vakið athygli í umræðunni í dag er auðvitað samanburðurinn á þessum flötu 5,2% hækkunum þegar verðbólguspáin á næsta ári er 3,6%. Markaðirnir eru að sjálfsögðu búnir að svara þessu strax þannig að það þarf ekkert pólitíska fulltrúa hér inni í sal til að velta fyrir sér hvort þessi ráðstöfun sé verðbólguhvetjandi eða ekki; markaðirnir svöruðu því strax að hún er það.
Svo ég gleymi nú ekki að nefna það, frú forseti, af því að ég gleymdi því þegar ég ræddi flugvellina í síðustu viku: Ef það er svona nauðsynlegt að selja einhverjar eignir ríkisins — og ég geri ekki lítið úr því, ríkið á fullt af eignum sem ég held að ríkið hvorki þurfi að eiga né eigi alls ekki að eiga — þá er þetta varla efst á blaði þar, innviðir í samgöngumálum þar sem þessi ríkisstjórn hefur nú aldeilis talað um að hún ætli að gefa í og réttlætir nánast aðra hverja skattahækkun einmitt með átaki í þeim málaflokki. Þá bendi ég t.d. á að ég hygg að ríkisjarðirnar séu talsvert vel á þriðja hundrað, þannig að þar er möguleiki á að selja umtalsverðar eignir án þess að valda skaða.
Mig langar hins vegar, af því að tíminn líður svo hratt, frú forseti, að víkja aðeins að öðru og fara í orminn sjálfan. Þar er ýmislegt að finna því þetta ríður ekki við einteyming, frú forseti. Það sem hefur mest verið rætt hér og var rætt hér í síðustu viku er allt saman, eins og gengur, kryddað hraustlega núna með orminum. Mig langar að fara, þó ekki væri nema bara í einn lið sem varðar það sem við köllum úrvinnslugjald. Þar sjáum við hækkanir, frú forseti, sem eru ekkert nálægt þessum 5,2% hækkunum, alls ekki. Við erum að sjá t.d. umbúðir úr plasti hækka úr 65 kr. kílóið í 125 kr. kílóið. Það er 92,3% hækkun, frú forseti. Heyrúlluplast hækkar úr 65 kr. í 125 kr., um 92,3% einnig. Mér sýnist fljótt á litið að fyrir nokkuð gott kúabú með kannski 120 gripi, eitthvað slíkt, oft eru nú nokkrar skjátur þar með, nokkrar kindur, muni þetta hækka kostnað við heyskap um u.þ.b. 120.000 kr., bara þessi eina breyting.
Þetta heldur bara svona áfram, frú forseti. Þetta tekur engan enda. Sólarrafhlöður hækka úr 5 kr. á kílóið í 30 kr. kílóið. Það er 500% hækkun, ekki 5,2%. Stór raftæki — en ég viðurkenni áður en ég nefni þá tölu, frú forseti, að ég veit ekki hvar mörkin liggja milli þess að raftæki sé stórt eða nett; ég geri samt ráð fyrir að hér sé um að ræða í það minnsta eitthvað á stærð við þvottavél eða eitthvað slíkt; við erum ekki að tala um einhver smátæki — þar erum við að tala um hækkun úr 11 kr. í 30 kr. Það er 172,7% hækkun. Lítil raftæki úr 24 kr. í 35 kr., það er 45,8% hækkun. Kælitæki úr 38 kr. á kílóið í 52 kr. á kílóið. Það er 36,8% hækkun. Svona heldur listinn bara áfram, frú forseti. Mér er til efs að það hafi í seinni tíð verið gengið eins hraustlega fram í að sækja meira fé úr hendi almennings í gegnum tiltölulega lítt sýnilegar hækkanir.
Nú hefur hækkun á tekjuskatti verið dálítið rædd hér í dag þar sem svokallað framleiðniviðmið er tekið af sem er 1% ofan á persónuafsláttinn. Það er bein skattahækkun á tekjurnar. En hér er verið að fela alls konar hækkanir út og suður í liðum sem kannski hinn venjulegi borgari er ekkert að skoða dag frá degi. Meira að segja í liðum sem eru mjög stórir, eins og t.d. ETS-kerfinu, sjáum við gjaldið fara úr 10.123 kr. árið sem er að líða í 11.035 kr. Það er 9% hækkun.
Frú forseti. Ég veit að það er ekki skemmtilegur ræðustíll að fara í svona upptalningu og sjálfsagt eru einhverjir sem hafa verið að horfa farnir að geispa núna en þetta eru engar smá tölur. Þetta eru engar smá prósentur. Ég nefni aftur hérna 500% hækkun.
Síðan held ég að það sé ekki hægt annað en að nefna það hér áður en ég renn út á tíma að frumvarpið gerir ráð fyrir að verðlagsuppfærsla krónutöluskatta muni hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs sem nemur einhverjum 0,28%. Þetta virkar kannski ekki stórt. Þetta er samt það stórt að við mat á áhrifum hjá einstaklingi sem er til að mynda með 50 millj. kr. verðtryggt húsnæðislán leggjast á höfuðstólinn 140.000 kr.
Ég hef nú farið yfir, frú forseti, ansi marga liði sem eru að hækka og sumir hverjir í þannig prósentutölum að það er erfitt að hreinlega skilja hvert stefnt er, nema markmiðið sé að engu verði nokkurn tíma hent, að allt sem við notum verði eilíft því að allt sem fellur meira og minna undir þennan lið, úrvinnslugjald eða Úrvinnslusjóð, tekur gríðarlegum hækkunum, alveg gríðarlegum. Vissulega er þessi listi ekki tæmandi, frú forseti, langt í frá, en þetta gefur aðeins innsýn í hvað verið er að hugsa og hvernig verið er að nálgast verkefnið. Ég minni, því að ég á nokkrar sekúndur eftir, á það sem ég nefndi í ræðu í síðustu viku, að 32 tonna vörubíll sem er keyrður 100.000 km á ári í til að mynda vöruflutningum fyrir landsbyggðina er að fara að hækka um 718.000 kr. á hverju ári, frú forseti.